kaerleikur.is
CD Lög og textar Prenta Tölvupóstur

cd_fronur_allt.jpg













Hér að neðan er listi yfir lög og texta sem er að finna á disknum.
 
1. Kærleikur – Óðmenn

2. Ólýsanleg – Magnús Þór Sigmundsson
3. Allt í himnalagi – Regína Ósk
4. Ég lifi í draumi – Eyjólfur Kristjánsson og
Björgvin Halldórsson
5. Losing a friend – Nylon
6. I think of angels – KK og Ellen Kristjánsdóttir
7. Lífsbókin – Bergþóra Árnadóttir
8. Þegar ég fer – Hera Björk
9. Vorið kemur ( Vikivaki ) Diddú og Valgeir Guðjónsson
10. Ást – Ragnheiður Gröndal
11. Stefanía – Valgerður Ólafsdóttir
12. Sól að morgni – Bubbi
13. Kramið hjarta – Helgi Björnsson og Regína Ósk
14. Söknuður – Vilhjálmur Vilhjálmsson

 

Kærleikur - Jóhann G. Jóhannsson
    Lag og texti: Jóhann G. Jóhannsson.
    Birt með góðfúslegu leyfi höfundar.
Þótt ég talaði tungum manna og engla
en hefði ekki kærleika
yrði ég hljómandi málmur
eða hvellandi bjalla.
Og þótt ég hefði spádómsgáfur
en hefði ekki kærleika
ég væri ekki neitt.

Og þótt ég hefði svo sterka trú
að færa mætti fjöll úr stað
en hefði ekki kærleika
ég væri ósköp snauður.
Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum
og framseldi líkama minn
en hefði ekki kærleika
þá væri ég engu bættari.

Kærleikur trúir öllu,
kærleikur vonar allt,
kærleikur hann umber allt
og fellur aldrei úr gildi.
Já - kærleikur hann umber allt
og fellur aldrei úr gildi.
 
Texti úr Kórintubréfi Páls postula
-tekinn saman af Jóhanni G. Jóhannssyni  

Ólýsanleg – Magnús Þór Sigmundsson
    Lag og texti: Magnús Þór Sigmundsson.
    Með góðfúslegu leyfi (P) Sena 2005

Sól á himninum skín
Sem aldrei skugga minn sér.
Hún bjó hann samt til
og hann fylgir mér.
Eins er ástin sem ég til þín ber.
Ólýsanleg.

Það leika sér skuggi og ljós
jörð, tungl og sól.
Leika sér himninum á
eiga þar skjól
Svo var stjarna á himni
sem lýsti upp eilífa nótt.

Ég veit að til er svo margt
sem í fjarlægð er smátt.
Milljónir stjarna
sem aldrei sjást.
Já, eins er ástin sem ég til þín ber.
Ólýsanleg.

Kyssast skuggar um kvöld
og renna saman í eitt.
En leysast svo upp
í ekki neitt.
Eins er ástin sem ég til þín ber.
Ólýsanleg.

Já jörðina himnana og mig
í sandinum spor.
Sólina hafið og þig
tveir skuggar um nótt.
Eins er ástin sem ég til þín ber.
Ólýsanleg.


Allt í himnalagi – Regína Ósk
    Lag: Ragnar Hermannsson
    Texti: Stefán Hilmarsson
    Með góðfúslegu leyfi (P) Sena 2006
Ef ég fæ að faðma þig um stund
þá er ég í lagi
þegar þú brosir blítt við mér
er allt í himnalagi
Þó regn og hríð
hamist glugginn á í erg og gríð
þá er allt í lagi,
því ég veit að þú ert hér hjá mér.
Ef ég á í hjarta þínu stað
þá er lífið í lagi.
Á meðan þú ert besti vinur minn
þá verður allt í lagi.
Þó líði ár
og ellin komi með sín gráu hár,
þá verður allt í lagi
því ég veit að þú ert hjá mér
Ég hef allt sem skiptir máli;
frið í sálu mér og trú.
Ég vil ekki nokkru breyta hér.
Lífið er í lagi
svo lengi sem ég hef þig hjá mér.

Ég lifi í draumi Eyjólfur Kristjánsson og Björgvin Halldórsson
    Lag: Eyjólfur Kristjánsson
    Texti: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
    Birt með góðfúslegu leyfi höfundar.

Ég lifi í draumi, dreg hvergi mörkin dags og nætur
Sveiflast aðeins ósjálfrátt
Í hægum gangi
Á fullt í fangi með að finna það
Sem oftast reynist öfug átt
Það er líkt og ég sé laus úr öllum viðjum
Lentur hringsólandi á vegi miðjum
Ég lifi í draumi
Dreg hvergi mörkin dags og nætur
Sveiflast aðeins ósjálfrátt
Ég lifi í tómi, tek engan þátt í trylltum dansi
Fólksins allt í kringum mig
Aleinn á randi,
veit að minn vandi er að vera þar
Sem enginn getur áttað sig
Það er líkt og sé lagstur út í bili
Leitandi að bát í réttum kili
Ég lifi í tómi, tek engann þátt í trylltum dansi
Fólksins allt í kringum mig
Aleinn á randi
Veit að minn vandi er að vera þar
Sem enginn getur áttað sig
Það er líkt og ég sé lagstur út í bili
Leitandi að bát á réttum kili
Ég lifi í tómi tek engann þátt í trylltum dansi
Fólksins allt í kringum mig
Ég lifi í veröld, veit ekki hvaðan vindar þjóta
En þeir fara framhjá mér
Einskonar fangi á víðavangi eða varnarlaus
Gegn því sem er á meðan er

Það er líkt og ég sé lamaður af ótta

Líf mitt rennur burt á hröðum flótta

Ég lifi í veröld veit ekki hvaðan vindar þjóta

En þeir fara framhjá mér.   Losing a friend - Nylon
    Lag: Antony & Christofer Griffiths
    Birt með góðfúslegu leyfi höfundar.
Since you’ve been gone, life still goes on
but it’s not the same
the days linger on
and the nights seem so long
When there’s no one to blame
And I can’t go on
Singing the same sorry song
But I can’t get you out of my head
Today, today
But it´s all right
I still remember the first time
Everything’s changed on the inside
I was alright in the end
And it’s not cause you’re breaking my heart
I´m just losing a friend
Yesterday’s gone and I’ve just begun
To live for the day
The days still go on
And on the nights seem so long
Without no one to blame
And I can’t go on
Singing the same sorry song
But I can’t get you out of my head
Today, today
But it’s alright
I still remember the first time
Everthing’s changed on the inside
I was alright on the outside of life
 

I think of angels – KK og Ellen Kristjánsdóttir
    Lag og texti: Kristján Kristjánsson
    Birt með góðfúslegu leyfi höfundar.

When I think of angels
I think of you
And your flaming red hair
and the things that you do.
I heard you had left
no it couldn't be true
I think of angels
I think of you.
Godsspeed to you angel
wherever you go
although you have left
I want you to know
My heart's full of sorrow
I wont let it show
I´ll see you again
when it's my time to go.
 

Lífsbókin – Bergþóra Árnadóttir
    Lag: Bergþóra Árnadóttir
    Texti: Laufey Jakobsdóttir
    Birt með góðfúslegu leyfi útgefanda.

Ljúktu nú upp lífsbókinni
lokaðu ekki sálina inni.
Leyfðu henni í ljóði og myndum,
leika ofar hæstu tindum.

Svipta burtu svikahulu.
Syngja aftur gamla þulu,
líta bæði ljós og skugga,
langa til að bæta og hugga.
Breyta þeim sem böli valda
breyta stríði margra alda.
Breyta þeim sem lygin lamar,
leiða vit og krafta framar.
Gull og metorð gagna ekki
gangir þú með sálarhlekki.

Þegar ég fer – Hera Björk
    Lag: D. Lavoie
    Texti: Hera Björk
    Birt með góðfúslegu leyfi rétthafa: Frost Culture Company ehf.
Enginn getur breytt því hvernig lífið fer
Enginn getur séð það sem að fyrir ber
Þessi örlög mín ég alls ekki fyrir sá
allt önnur endalok ég vil fá
Fallegt ævintýr sem að ég lifað hef
sál mín að því býr þegar ég leggst og sef
Það sem lífið bauð og þú hefur gefið mér
Ég sé það svo skýrt er ég ligg hjá þér

Þegar ég fer
þá veistu að minningarnar verða hér
þegar ég fer
þá veistu að ég ávallt mun fylgja þér
þegar ég fer

Það er svo margt sem mig langar til að segja þér
Ég er svo þakklát fyrir tímann sem ég hef verið hér
Allt sem óska ég er að þú lofir því
að láta ekki sorg ná tökum á þér
Þegar ég fer
þá veistu að minningarnar verða hér
þegar ég fer
þá veistu að ég mun alltaf fylgja þér
þegar ég fer.

 


Víkivaki (Sunnan yfir sæinn) - Diddú og Valgeir Guðjónsson
Lag: Valgeir Guðjónsson
Texti: Jóhannes úr Kötlum
Birt með góðfúslegu leyfi höfundar.
Sunnan yfir sæinn breiða
sumarylinn vindar leiða.

Draumalandið himinheiða

hlær - og opnar skautið sitt.

    Vorið kemur, heimur hlýnar,

hjartað mitt !
Gakk þú út í græna lundinn,
gáðu fram á bláu sundin.

Mundu, að það er stutt hver stundin,

stopult jarðneskt yndi þitt.

    Vorið kemur, heimur hlýnar,

hjartað mitt !
Allt hið liðna er ljúft að geyma
- láta sig í vöku dreyma.

Sólskinsdögum síst má gleyma,

segðu engum manni hitt !

    Vorið kemur, heimur hlýnar,

hjartað mitt.

 

Ást – Ragnheiður Gröndal
    Lag: Magnús Þór Sigmundsson
    Texti: Sigurður Nordal
    Með góðfúslegu leyfi (P) Sena 2003

Sólin brennir nóttina og nóttin slökkvir dag,
þú ert athvarf mitt fyrir og eftir sólarlag.
Þú ert yndið mitt áður og eftir að dagur rís,
svölun í sumarsins eldi og sólbráð á vetrarins ís.

Svali á sumardögum og sólskin um vetrarnótt,
þögn í seiðandi solli og söngur ef allt er hljótt.
Söngur í þöglum skógum og þögn í borganna dyn,
þú gafst mér jörðina og grasið og Guð á himnum að vin.

Þú gafst mér skýin og fjöllin og Guð til að styrkja mig
ég fann ei hvað lífið var fagurt fyrr en ég elskaði þig.
Ég fæddist til ljóssins og lífsins er lærði ég að unna þér
og ást mín fær ekki fölnað fyrr en með sjálfri mér.

Aldir og andartök hrynja með undursamlegum nið,
það er ekkert í heiminum öllum nema eilífðin Guð og við.


Stefanía – Valgerður Ólafsdóttir
    Lag: Sigurður Breiðfjörð Jónsson
    Texti: Valgerður Ólafsdóttir
 
Þegar ég vakna ég hugsa til þín, til þín.
Ljósið mitt fallega bjarta, þú varst svo fín.
Þú fórst á augnabliki, ég svaf svo rótt
Ég vildi ég hefði verið með þér, því þú fórst alltof fljótt.
En ég verð samt að muna alltaf
Þú ert mér ætíð hjá
Ég vil þú vitir að ég elska þig
Og í draumi ég fæ þig að sjá
Söknuður nístir og togar í hjarta mitt
Mig langar að komast í kærleiksríkt ljósið þitt
Ég átti þig alltaf að, allt þitt líf
Og fyrir þær minningar er ég þakklát alla tíð
En ég verð samt að muna alltaf
Þú ert mér ætíð hjá
Ég vil þú vitir að ég elska þig
Og í draumi ég fæ þig að sjá
Það sem lifir í öllum er brosið þitt
Þitt stóra hjarta þitt glaðværa bjarta líf
Nú gef ég mitt hjarta bara til þín, til þín
Mín fallega og góða að eilífu elsku Stefanía mín
En ég verð samt að muna alltaf
Þú ert mér ætíð hjá
Ég vil þú vitir að ég elska þig
Og í draumi ég fæ þig að sjá

Sól að morgni – Bubbi Morthens
    Lag og texti: Bubbi Morthens
    Með góðfúslegu leyfi (P) Sena 2002

Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljóss
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert, mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni
þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd.
Og slökk þú hjartans harmabál
sít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni
svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni
svo vöknum við með sól að morgni.

Svo vöknum við með sól að morgni
svo vöknum við með sól að morgni.


 

Kramið hjarta – Helgi Björnsson og Regína Ósk
    Lag og texti: Valgeir Guðjónsson
    Birt með góðfúslegu leyfi höfundar.
Stundum er allt svo óvænt
allt er í fyrsta sinn

ég heyrði svo vel

hvert einasta orð

en engu þeirra hleypti ég inn
ég vissi hvað þú varst að segja
sá varir þínar mynda hljóð

eins og regndropa á blautri rúðu

sem renna hver í sína slóð
    hver getur læknað kramið hjarta
    hver getur límt saman brotna sál

    hver getur stutt við stoltið særða

    hver getur læknað kramið hjarta
þú leist aldrei aftur
hver andardráttur færði þig fjær

og tíminn stóð kyrr

eins og svartur köttur

yfir bráð sinni með beittar klær
svo komu flóð og fjara
færandi vatn með sér

en nú er enginn

til að ösla sporin

sem eru ekki lengur hér
     hver getur læknað kramið hjarta...
Söknuður – Vilhjálmur Vilhjálmsson
    Lag: Jóhann Helgason
    Texti: Vilhjálmur Vilhjálmsson
    Með góðfúslegu leyfi (P) Sena 1977

Mér finnst ég varla heill, né hálfur maður,
og heldur ósjálfbjarga, því er verr.
Ef þú værir hjá mér, vildi ég glaður
verða betri en ég er.

Eitt sinn verða allir menn að deyja
eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verð að segja
að sumarið líður allt of fljótt.

Við gætum sungið, gengið um,
gleymt okkur hjá blómunum,
er rökkvar, ráðið stjörnumál,
gengið saman hönd í hönd,
hæglát farið niðrað strönd.
Fundið stað,
sameinað
beggja sál.

Horfið er nú sumarið og sólin
í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttu ís og myrkur jólin,
nú einn ég sit um vetrarkvöld.

Því eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verð að segja,
að sumarið líður allt of fljótt.

Ég gái út um gluggann minn.
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég rýni út um rifurnar,
ég reyndar sé þig alls staðar,
þá napurt er.
Það næðir hér
og nístir mig
 

Hér kæmi spilari með lögunum ef flash væri sett upp.

 
 
cinq-grafík
©2004 Cinq-grafík.