| Efnisflokkar | |||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
|
| Upplýsingar | |||
|---|---|---|---|
|
| Skipulagsskrá Kærleikssjóðs Stefaníu var samþykkt af dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 6. ágúst 2004. |
|
|
|
S K I P U L A G S S K R Á 1. gr. Sjóðurinn heitir Kærleikssjóður Stefaníu Guðrúnar Pétursdóttur. Stefanía fæddist 23. október 1984 og lést 27. ágúst 2003. Sjóðurinn er stofnaður af Pétri Emilssyni og Sigrúnu Eddu Sigurðardóttur.2. gr. Tilgangur sjóðsins er að vinna að kærleika og styrkja þá sem eiga um sárt að binda vegna fráfalls ungmenna af slysförum eða sjálfsvíga.3. gr. Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík.4. gr. Stofnfé sjóðsins er 600.000 kr,. - sexhundruðþúsund krónur - fengið með minningargjöfum.5. gr. Stjórn sjóðsins skipa Pétur Emilsson, kt. 180647-2289 til vara Vigfús Þór Árnason, kt. 060446-3509. Sigrún Edda Sigurðardóttir, kt. 200455-3719, til vara Sigríður Emilsdóttir, kt. 010347-2709 og Þorvaldur Ingi Jónsson, kt. 030358-2529, til vara Dís Kolbeinsdóttir, kt. 050757-2509. Stjórnin skiptir með sér verkum. 6. gr. Tekjur sjóðsins eru frjáls framlög, vextir og arður af eignum sjóðsins og annað það sem sjóðnum kann að áskotnast.7. gr. Stjórn sjóðsins er heimilt að veita af tekjum hans og óbundinni eign styrki í samræmi við tilgang hans. Stjórn sjóðsins annast styrkveitingar úr sjóðnum og setur sér frekari úthlutunarreglur. Ávaxta skal stofnfé sjóðsins sem tryggilegast og arðvænlegast. Ekki er heimilt að skerða stofnfé sjóðsins. 8. gr. Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Reikningar hans skulu endurskoðaðir árlega af viðskiptafræðingi og lagður fyrir stjórn sjóðsins sem sendir þá Ríkisendurskoðun í samræmi við ákvæði laga nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá. 9. gr. Heimilt er að breyta skipulagsskrá þessari, en til þess þarf samþykki allra stjórnarmanna og staðfestingu dómsmálaráðuneytis.Samþykki allra stjórnarmanna þarf til að leggja sjóðinn niður. Skal eigum hans þá ráðstafað í samræmi við tilgang sjóðsins. 10. gr. Leita skal staðfestingar dómsmálaráðuneytis á skipulagsskrá þessari. Reykjavík, 29. júlí 2004 Pétur Emilsson Sigrún Edda Sigurðardóttir Þorvaldur Ingi Jónsson |